Æj ákvað að skrifa smá blogg, hætta þessari bloggleti..
Svo smá blogg frá svona hátíðunum og fram til dagsins í dag..
Tinnsla kom heim, fórum á Gus Gus, það var geggjað.
Aðfangadag fór ég í vinnuna frá 11-14, það var næs, flýtti deginum aðeins..
Var svo bara með fjölskyldunni.
Jóladag fór ég í jólaboð til ömmu Sillu.
Annann fór ég í jólaboð til ömmu Löllu.
Hitti Döggu mín aðeins í fríinu, þó ALLT OF LÍTIÐ!
Vann auðvitað á milli jóla og nýárs.
Rúna mín kom heim 30 og til ak 31, þar sem veðrið var ömurlegt á þessu tímabili var ekkert víst að hún kæmist hingað, en sem betur fer náði hún heim
Ég fór líka í work á gamlársdag frá 11-14, Rúna kom so til mín og var hjá okkur á Gamlárskvöld. Það var næs. Hún borðaði með okkur og við skutum upp og sonna, eða já við 2 horfðum á, hehe
Fórum til Tinnu og þar voru Elín og Sigga, það var stuð á okkur, fórum so á palla í sjallann.
Svo er bara búið að vera chill og vinna.
Ég og Arnrún kíktum á djammið á lau, á kaffi Ak, hittum Evu, Eriku, Örnu Dögg, Írisi Ósk og Röggu þar og djömmuðum með þeim.
Fórum saman á fatlaða klósettið, þegar við ætluðum fram, stóð giant dyravörður fyir utan og bannaði okkur að fara út, sagði að LÖGGAN væri að koma því við hefðum brotið hurðina!
Say what.. so komu þessar líka 2 ungu og myndarlegu löggur og lokuðu sig inná klósettinu með okkur, hmm.. he.. rugluðum aðeins í þeim og fengum þá bara til að hlæja. Þeir tóku niður nöfn og kennitölur en sögðu okkur að hafa ekki áhyggjur því það væru engin vitni.
Okkur var svo sagt eftirá að þessi hurð hefði verið brotin fyrr um kvöldið svo við gætum ekki hafa gert þetta! So we are clear!
Það varð fight fyrir utan nætursöluna, einhver gaur frá rvk sem lamdi Eriku, svo fólk var ekki sátt þar, heh
Ég gerði nú engin major áramótaheit, nema bara verða betri manneskja, og allt sem því fylgir
Jæja, pottþétt allir hættir að lesa, heh..
En já MYNDIR!
-börny-